Leita í fréttum mbl.is

Skólaferðalag 1-6 bekkjar.

Á morgun er 1-6 bekkur á Kópaskeri og Lundi Öxarfirði að fara í skólaferðalag, stefnan er tekin á Mývatnssveit að hitta jólasveinana í Dimmuborgum. Það segja mér börnin að þar séu sko alvöru jólasveinar, ekkert plat eða "plastjólar,, eins og einn sagði um jólasveinana sem hjálpuðu við að kveikja á jólatrénu um helgina. HOO hvað ég hlakka til þótt við höfum líka farið þangað í fyrra. Ég vona bara að þeir taki ekki feil á mér og mömmu sinni Grýlu gömlu. Grin Svo á að fara í Vogafjósið líka, bæði í kaffi og kvöldmat.  Einn jóli ætlar að koma með okkur í íþróttahúsið þarna á milli þess að við étum. Á heimleið er áætlað að stoppa á Húsavíkinni og sjá Emil í Kattholti. Seint og um síðir komum við svo heim aftur. Það held ég að jólin hljóti að fara að nálgast eftir hittinginn við Jólasveinana.  W00t Það er eins gott að muna eftir myndavélinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Góða skemmtun á morgun, skilaðu kveðju til sveinka frá mér

Erna, 2.12.2008 kl. 21:17

2 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Sveinkar að mínu skapi í Mývatnssveitinni Góða ferð og skemmtun með „krílunum“ Dúna mín!

Sigríður Jóhannsdóttir, 2.12.2008 kl. 21:42

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þetta hljómar frábærlega

Jónína Dúadóttir, 2.12.2008 kl. 21:54

4 Smámynd: Anna Guðný

Nú ertu trúlega komin heim. Mikið hefur nú verið gaman hjá ykkur, trúi ég.

Hafðu það gott ljúfan

Anna Guðný , 3.12.2008 kl. 23:12

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það verður fjör hjá ykkur í sveitinni. Skemmtið ykkur vel!

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.12.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Jónína Eiríksdóttir
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
54 ára kerling bý á Kópaskeri, bjó áður í Ystuvík og á Akureyri, uppalin í Nýlendu á Stafnesi og  margra barna mamma fósturmamma og amma sem hefur ýmsar skoðanir á lífinu.  
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband