Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Sólin skín, gluggaveður.

Sólin skín en samt er ekkert mjög hlýtt úti, bara gluggaveður. Cool 

Ég er svo löt á blogginu þessar vikurnar að það er best að fara í bloggpásu í bili.

Hafið það gott.


Komin upp

Gott að Auðuni var lyft upp af hafsbotni, ég er nú fyrverandi Sandgerðirsbúi eða sko Miðneshrepps íbúi. Uppalin á Stafnesinu.Bið bara alla góða vætti að vaka yfir björgunnarsveitum landsinns,
mbl.is Auðuni lyft af botni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarfrí í viku

Já ég er í sumarfríi og er núna hjá mömmu í Miðhúsum í Sandgerði, ekki slæmt að vera þar. Kom til Reykjavíkur á fimmtudag og hitti dætur og barnabörnin þessi þrjú sem búa sunnan heiða, var að sjá yngsta ömmustrákinn Sigurð Braga í fyrsta sinn en hann er að verða 6 vikna. Laufey Björg og Solla fóru svo með mér í Kringluna á föstudag og "létu mig" kaupa hitt og þetta t.d. kjól, þeim hefur kanski fundist mamma gamla vera illa klædd eða?? Nú er ég bara orðin eins og ný Dúna, aldeilis munur eða sú gamla.

Ætla til Rvík aftur á morgun, hefði þurft að hafa fjögura vikna frí en ekki eina viku þetta er svo fljótt að líða.


Höfundur

Guðrún Jónína Eiríksdóttir
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
54 ára kerling bý á Kópaskeri, bjó áður í Ystuvík og á Akureyri, uppalin í Nýlendu á Stafnesi og  margra barna mamma fósturmamma og amma sem hefur ýmsar skoðanir á lífinu.  
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband