Leita í fréttum mbl.is

Moggablogg

Já hef ekki verið virk hér, og hef ákveðið að blogga ekki hérna meðan Davíð er ritstjóri moggans. Trúi ekki á fréttaflutning hans. Sorry. Ef ég blogga þá er það á kopaskerskerling123.is Er samt löt núna  á blogginu.

Er hætt hér

Er hætt allavega í bili. Mér finnst ráðning þessa ritstjóra ekki góð á þesum tíma. Hafið það gott ég er á fésinu. Blessss

Mikið er ég fegin.

Mikið er ég fegin núna að vera bara á gamla Peuoget bílnum mínum árgerð 1997/kom á götuna 1996. Hann á ég skuldlausan,hef átt hann í 10 ár og ef ég verð góð við hann og klappa honum annað slagið þá gæti hann dugað næstu fimm árin. Þessi bíll er nú svo lár að hann fer lítið í snjónum sem kemur oft hér á Kópaskeri og þeir sem eru á upphækkuðu jeppunum sínum hlæja eflaust að mér en verði þeim þá að góðu lánin sem hækkuðu um helming. Eitthver þekkir eflaust til og spyr eigið þið ekki jeppa líka? Svarið er ekki ég, en ég á mann sem á JEPPA Galloper árgerð 2000 og hann er búin að eiga hann í fimm ár og er enginn skuld á honum heldur. Það er mjög sjaldgjæft að ég fari eitthvað á jeppanum, mér finst leiðinlegt að keyra hann og svo eyðir hann mikið meira af olíunni en minn af bensíni. Við hefðum getað selt/látið báða bílana til samans fyrir svona 300.000-400.000 hugsa ég og keypt einn góðann sem bæði hefðu sætt sig við á svona 3.000.000-5.000.000. Þar sem við værum þá að spara tryggingar og þungaskatt af öðrum bílnum þá hefðum við getað greitt nálægt 500.000 í peningum og tekið lán fyrir afganginum. Lánið væri í erlendri mynt og stæði kanski í svona 6.000.000 kr núna (glæsilegt væri það og maðurinn orðin öryrki). Við eigum líka heilt hús á Kópaskeri og það finst okkur gott því hér er gott að búa, en ef okkur langaði að flytja þá erum við í vondum málum. Matsverð á einbýlishúsi með bílskúr er um 5.700.000 og söluverð hér er svona 7.200.000-9.000.000 á húsum af svipaðri stærð + að það selst lítið sem ekkert af húsum hér.. Hver færi svo sem að flytja út á land þar sem ekki er nein/lítil vinna? Kanski atvinnulausir eða öryrkjar? Ég búin að komast að því að ég hlýt að vera dálítið biluð að koma hingað og ekki síður maðurinn minn sem flutti til Kaliforníu/L.A. 11 ára og var þar í 17 ár og honum finst æðislegt að vera hér. Sumum er ekki við bjargandi.

Ef fólk vill koma með atvinnu hingað eða peninga og hugmyndir þá eru allir velkomnir og nokkur hús til sölu, heilsugæsla með mjög góðum lækni sem býr í nágrenninu, sjúkraþjálfun, hárgreiðsla, verslun, leikskóli, skólinn er í 20-25 mín í burtu. Norðurþing ákvað að sameina skólana í Lundi og á Kópaskeri í haust og hafa staðsetninguna í Lundi svo ekki er komin reynsla á það en ég veit að allir sem koma að skólastarfinu gera sitt besta til að börnunum líði vel þótt mikil óánægja sé meðal Kópaskersbúa á flutningi skólans, sem skiljanlegt er.

 Ég hef ekki heilsu í að blogga um pólitíkina og lögbönn. Þarf líka að lesa betur heimavinnuna til þess. Veit bara að peningar ráða öllu og öllum hvort sem þeir koma frá Kína, Bretlandi eða Hollandi. Eigið góðar stundir ef þið getið.


Við kvörtum

Íslendingar kvarta núna og kveina og ég er ein af þeim, en þegar ég les svona fréttir þá hálf skammast ég mín.
mbl.is Lést í skógareldum á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólin skín, gluggaveður.

Sólin skín en samt er ekkert mjög hlýtt úti, bara gluggaveður. Cool 

Ég er svo löt á blogginu þessar vikurnar að það er best að fara í bloggpásu í bili.

Hafið það gott.


Komin upp

Gott að Auðuni var lyft upp af hafsbotni, ég er nú fyrverandi Sandgerðirsbúi eða sko Miðneshrepps íbúi. Uppalin á Stafnesinu.Bið bara alla góða vætti að vaka yfir björgunnarsveitum landsinns,
mbl.is Auðuni lyft af botni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarfrí í viku

Já ég er í sumarfríi og er núna hjá mömmu í Miðhúsum í Sandgerði, ekki slæmt að vera þar. Kom til Reykjavíkur á fimmtudag og hitti dætur og barnabörnin þessi þrjú sem búa sunnan heiða, var að sjá yngsta ömmustrákinn Sigurð Braga í fyrsta sinn en hann er að verða 6 vikna. Laufey Björg og Solla fóru svo með mér í Kringluna á föstudag og "létu mig" kaupa hitt og þetta t.d. kjól, þeim hefur kanski fundist mamma gamla vera illa klædd eða?? Nú er ég bara orðin eins og ný Dúna, aldeilis munur eða sú gamla.

Ætla til Rvík aftur á morgun, hefði þurft að hafa fjögura vikna frí en ekki eina viku þetta er svo fljótt að líða.


Grásleppu vandræði.

Hefði getað farið verr. Það er ekki áhættulaust að fara á sjó, en það sögðu mér bræðurnir Agnar og Einar að landið hefði verið hættulegra en sjórinn. Sem betur fer voru þeir bara hressir þegar ég hitti þá um sexleitið í dag.
Þetta eru duglegir drengir og er sá eldri með "pungaprófið" með meiru.

mbl.is Grásleppubátar í vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólalok.

 Vorum voða dugleg í garðvinnu í gær, klipptum runna hægri,vinstri í samvinnu við nágrannana. Gott að eiga frábæra nágranna eins og Gunna Magga og öll fjölskyldan er. Síðan grilluðum við og borðuðum öll saman.

Í dag síðasti kennsludagur var í dag og við fórum í fjöruferð, grilluðum og kveiktum smá bál. Skólaslit verða svo á mánudag.

 Svo fórum við Þröstur aðeins út á Sléttu að Oddstöðum og Afaborg og fórum í gönguferð í fjörunni þar svona til að vera viss um að vorið sé komið.

Á morgun er svo útskriftin í kirkjunni á Húsavík, já ég er loks að útskrifast sem löglegur stuðningsfulltrúi í grunnskóla.

21 mai 09 002

Siggi litli og Maggi.

 


Flott hjá Jóhönnu Guðrúnu.

Það var óvenju gaman að horfa á Evróvisjon í kvöld, óvenju mörg góð lög að mínu mati. Spenna um 2-5 sæti en augljóst snemma að Norðmenn myndu vinna. Hafið það gott í kvöld og gangið hægt um gleðinnar dyr.
mbl.is Ísland í 2. sæti í Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Guðrún Jónína Eiríksdóttir
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
54 ára kerling bý á Kópaskeri, bjó áður í Ystuvík og á Akureyri, uppalin í Nýlendu á Stafnesi og  margra barna mamma fósturmamma og amma sem hefur ýmsar skoðanir á lífinu.  
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband