1.6.2009 | 00:46
Sumarfrí í viku
Já ég er í sumarfríi og er núna hjá mömmu í Miðhúsum í Sandgerði, ekki slæmt að vera þar. Kom til Reykjavíkur á fimmtudag og hitti dætur og barnabörnin þessi þrjú sem búa sunnan heiða, var að sjá yngsta ömmustrákinn Sigurð Braga í fyrsta sinn en hann er að verða 6 vikna. Laufey Björg og Solla fóru svo með mér í Kringluna á föstudag og "létu mig" kaupa hitt og þetta t.d. kjól, þeim hefur kanski fundist mamma gamla vera illa klædd eða?? Nú er ég bara orðin eins og ný Dúna, aldeilis munur eða sú gamla.
Ætla til Rvík aftur á morgun, hefði þurft að hafa fjögura vikna frí en ekki eina viku þetta er svo fljótt að líða.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Allt annað að sjá þig núna...........
Rut Sumarliðadóttir, 1.6.2009 kl. 14:07
ÆI knús til þín elskan og berðu mömmu þinni kveðju mína.
Kærleik til þín og þinna
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.6.2009 kl. 21:04
Sæl og blessuð
Njóttu dvalarinnar í borg Óttans. Er nýkomin þaðan.
Guð veri með þér
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.6.2009 kl. 23:02
Jónína Dúadóttir, 2.6.2009 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.