22.5.2009 | 21:52
Skólalok.
Vorum voða dugleg í garðvinnu í gær, klipptum runna hægri,vinstri í samvinnu við nágrannana. Gott að eiga frábæra nágranna eins og Gunna Magga og öll fjölskyldan er. Síðan grilluðum við og borðuðum öll saman.
Í dag síðasti kennsludagur var í dag og við fórum í fjöruferð, grilluðum og kveiktum smá bál. Skólaslit verða svo á mánudag.
Svo fórum við Þröstur aðeins út á Sléttu að Oddstöðum og Afaborg og fórum í gönguferð í fjörunni þar svona til að vera viss um að vorið sé komið.
Á morgun er svo útskriftin í kirkjunni á Húsavík, já ég er loks að útskrifast sem löglegur stuðningsfulltrúi í grunnskóla.
Siggi litli og Maggi.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Nei held ekki, geri ekki mikið úr þessu. Ætla að vera með grill hér annaðkvöld ásamt annari sem er að útskrifast sem leikskóla leiðbeinandi. En ég fæ húfu
til að vera í stíl við dæturnar með sínar stúdentshúfur, að vísu ekki hvíta kollinn. Þröstur grillmeistari ætlar að sjá um að grilla lærið.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 22.5.2009 kl. 22:09
Er allt klárt thegar ég kem nordur? Grill, gardur og trampolin
Kvedja úr hitanum hér á Spáni
Sverrir Einarsson, 23.5.2009 kl. 12:22
Innilega til hamingju Dúna!
Rut Sumarliðadóttir, 23.5.2009 kl. 12:46
Til lukku med áfangann, maeti í grillveisluna seinna í sumar. Hér er ekkert sem minnir á Costa del Kópasker nema góda vedrid.
Sverrir Einarsson, 25.5.2009 kl. 10:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.