9.11.2008 | 14:52
Jólahvað?
Það fer víst að styttast til jóla og sumir verða jólastressóðir.
Gott ráð er að gera bara eitthvað skemmtilegt á aðvenntu eins og aðföndra og þeir duglegu búa til jólagjafirnar.
Þennan jólatrésdúk fékk ég einu sinni frá mömmu.
Það vanntar í mig þessa hæfileika.
Hafið það gott englarnir mínir.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Mikið ofsalega er dúkurinn fallegurHafðu það líka gott engillinn minn
Jónína Dúadóttir, 9.11.2008 kl. 15:07
Vá, hvað þetta er fallegur dúkur. Vonandi fer þessi sunnudagur líka vel með þig
Sigríður Jóhannsdóttir, 9.11.2008 kl. 15:46
Já fallegur dúkur en ætla að bíða með að hugsa um jólin.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 9.11.2008 kl. 17:19
Það er meira að segja byrjað að skreyta í sveitinn hérna. En það er bara fínt , fullt af ljósum út um allt. Ekki veitir okkur af. Mikið er dúkurinn fallegur. Það sama gerðist með mig og þig, gardínugenið vantar. En við erum þá bara ógisslega flottar í einhverju öðru.
Hafðu það gott ljúfan
Anna Guðný , 9.11.2008 kl. 18:37
Hafðu það gott sömuleiðis
Líney, 9.11.2008 kl. 19:24
Sko ekkert jóla eitthvað hér fyrr en eftir 1. des sko, jólin koma nógu snemma samt
Sverrir Einarsson, 9.11.2008 kl. 19:40
Þetta er svo glæsilegur dúkur að ég gæti dáðst að honum endalaust. Alveg merkilegt hvað Amma er hæfileikarík á þessu sviði.
Annars vildi ég bara segja að ég hef einmitt verið svo heppin að erfa hæfileikana þína í prjónaskapnum mamma mín, rakst á hálfkláraða vettlinga, hálfkláraða tösku og hálfkláraðan trefil inni í skáp í gær... Eða, reyndar er "hálfklárað" ýkjur, það á bara eftir að fela endana!
Get reyndar ekki sagt að þetta eigi við um þig núna, þú sem gafst mér þetta glæsilega (og fullkláraða) prjónaða vesti í afmælisgjöf . Kannski vex ég líka upp úr þessu og fer að klára prjónaskapinn!
Fanney (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 20:30
Já mamma gerir fallega hluti. En Fanney mín hvaða meiningar eru þetta á gömlu konuna (mig) ég fann að vísu hálfkláraða peysu upp í skáp um daginn. Þessar dætur mínar eru alltaf að bauna á mig, t.d. að peysurnar mínar hafi alltaf endað sem vesti. Góða nótt.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 9.11.2008 kl. 21:47
Sverrir minn ég er eiginlega sammála þér jólahvað byrjar ekki fyrr en á aðventu.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 9.11.2008 kl. 21:49
Glæsilegur dúkur Dúna mín. Ég get ekki sagt að ég sé mikil handavinnukona, er þó að paufast við að sauma út jólaborðdúk en það gengur nú frekar hægt. Sauma fjögur spor og rek upp þrjú En þetta hefst allt saman hjá mér að lokum og einhvern tíman mun hann skreyta jólaborðið þó að það verði ekki um þessi jól
Erna, 9.11.2008 kl. 22:30
Hann er bara yndislegur dúkurinn sem þú fékkst frá henni mömmu þinni og gaman fyrir þig að eiga hann.
Ég er löngu farin að gera eitthvað skemmtilegt.
Ljós og gleði til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.11.2008 kl. 19:53
Mamma þín var að föndra jólatrésdúk í dag í Miðhúsum
Líney, 10.11.2008 kl. 21:27
Silla flott að vita um þetta, en það fréttist nú allt í smábæjunum, það er bara Dúna sem á heima í stórborg.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.11.2008 kl. 19:30
úps I did it agein
Líney, 11.11.2008 kl. 19:49
Óska eftir mömmu, óskandi að hún kynni að sauma jólatrésdúk.
Anna Guðný , 12.11.2008 kl. 01:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.