9.10.2008 | 20:11
Á bara að henda fólkinu út á guð og gaddinnn strax í dag?
Ég held að þetta sé bara byrjunin, miklu fleiri eiga eftir að missa vinnuna. Það mun ríkja mikil hræðsla hjá öllu bankastarfsfólki og mörgum öðrum á Íslandi. Fyrirtæki munu fara umvörpum á höfuðið, því miður og einstaklingar fylgja þar á eftir, því ekki borgar þú reikninga án atvinnu.
Ef jafn mikið er að marka ummæli ráðamanna um að innistæður og sparífé fólks sé tryggt og ýmislegt annað sem þeir hafa verið að lofa upp í ermina á sér, þá er því miður engu að treysta um það. Allavega mundi ég ekki éta hattinn minn upp á það.
Reynið samt að sofa rótt því það bjargar engu að verða andvaka.

Óvissa með uppsagnarfrest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eins gott að þú átt engan hatt
Líney, 9.10.2008 kl. 20:33
Satt Líney en þú þurftir nú ekki að koma upp um það. Ég hefði orðið að éta húfuna mína.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 9.10.2008 kl. 21:03
Líney, 10.10.2008 kl. 23:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.