Leita í fréttum mbl.is

Ég er komin á hausinn.

Já ekki varð ég glöð með skattahækkun og annað skemmtilegt sem við fengum yfir okkur í dag. Samt fór ég í klippingu og strípur í dag til Rannveigar það var æðislegt enda veit hún ekki hvað verðbólga er, alltaf jafn ódýr.
En þetta er það sem alltaf hefur gerst, hækka skatta, hækka skatta, helst mest á þá sem hafa um og undir 100.þúsund kallinum. Mér finst nú að þeir sem hafa yfir milljón á mánuði mættu allveg taka meira á sig og þeir sem hafa 150.000- mættu vera skattlausir. En þeir sem eiga pening ráða öllu er það ekki?? Allaveg var það svoleiðis.
Jæja ég fékk þessar vísur sendar. Ákvað að koma þeim hér á framfæri. Passið ykkur á Grýlu.

Glitnisgaur kom fyrstur,
gráðugur í öll bréf.
Hann laumaðist í vasana
og lék með fólksins fé.

Hann vildi sjúga þjóðina,
þá varð henni ekki um sel,
því greyið var sko afæta,
það gekk nú ekki vel.

2.
Björgúlfsaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
Hann skreið úr skipi hafsins
og skaust í bankann inn.

Hann faldi sig í Rússlandi
og froðunni stal,
meðan bjórmeistarinn átti
við Yeltsín gamla tal.

3.
Bjármann hét sá þriðji,
böðullinn sá.
Hann krækti sér í milljarða
þegar kostur var á.

Hann hljóp með þá til Noregs
en hirti ekki um sjóðina,
sem féllu hver af öðrum
við sjáum núna slóðina.

4.
Sá fjórði, Bændasleikir,
var fjarskalega sljór.
Og ósköp varð hann leiður,
þegar bankadruslan fór.

Þá þaut hann eins og Welding
og þotuna greip,
og flaug með henni í London
því krónan var svo sleip.

5.
Sá fimmti Smárasnefill,
var skrítið fjármagnsstrá.
Þegar hinir fengu í nefið
hann barði dyrnar á.

Þeir ruku'upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pokanum
og fékk sér góðan verð.

6.
Sá sjötti Sigjónárna,
var alveg dæmalaus.-
Hann framundan rústunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið vildi skýringar
á auralausum reikningum,
hann slunginn var að afsaka
og skyldi ei neitt í hlutunum.

7.
Sjöundi var Heiðarmár,
sá var sjaldan sýndur,
ef fólkið vildi tal af 'onum
hann var alltaf týndur.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó þjóðarskútan maraði
þá hálfu kafi í.

8.
Baugabur, sá áttundi,
var skelfilega þver.
Hann hluta keypt'af bönkunum
með hluta úr sjálfum sér.

Svo lánaði hann sér milljarða
og yfir öðrum gein,
uns hann stóð á blístri
og stundi og hrein.

9.
Níundi var Nógafaur,
næmur á fé og snar.
Hann hentist út um heiminn
og hluti keypti þar.

Á enskum bita sat hann
í símaleik
og át þar hluti drjúga,
enga Breta sveik.

10.
Tíundi var Skallakjaftur,
tungulipur mann,
sem hamaðist á landslýð
og æsti upp hann.

Ef vammlegt var hvergi
né ósiðlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

11.
Ellefti var Stjórnaskelfir
aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hláleg
og heljarstór eyru og nef.

Ef fnyk af féhyggju
ekki hann fann,
þá léttur, eins og reykur,
lyktina upp spann.

12.
Sólráður, sá tólfti,
kunni að spinna vef.-
Hann þingmannasveitina
sveigði í kosningaþref.

Hann krækti sér í fylgi,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist enginn
akkurinn hans þá.

13.
Þrettándi var Kreppugeir,
þá var komið kvöld,
alltaf kom hann síðastur
á bankahrunsöld.

Hann blekkti litlu börnin sín,
sem mótmæltu prúð og fín,
og trítluðu um bæinn
með spónaspjöldin sín.

Höfundur óþekktur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Jú Dúna þetta er ekki burðugt. Það á að hlaða endalausum birðum á þá sem hafa það tiltölulega (fjárhagslega) skítt fyrir.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 12.12.2008 kl. 00:38

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já það er alltaf langvinsælast að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur...Góða helgi mín kæra

Jónína Dúadóttir, 12.12.2008 kl. 06:40

3 Smámynd: Dóra

Mikið rétt hjá þér Dúna mín.. ótrúlegt hvað alltaf er hægt að troða á þeim sem hafa það minnst.. Þeir ættu að skattleggja þá sem hafa tekjur og finna alla þá sem eru að svíkja undan skatti.. Og við ættum að vera duglegri að láta vita af svoleiðis svikurum...

kærleiksknús til þín og eigðu góða helgi gæska... Dóra Esbjerg Dk

Dóra, 12.12.2008 kl. 08:01

4 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Við öryrkjar erum næstir, bíð eftir að bæturnar verði skertar eins og hækkanirnar séu ekki nóg, arg og garg

Rut Sumarliðadóttir, 12.12.2008 kl. 12:56

5 Smámynd: Erna

Góða helgi Dúna og njóttu aðventunnar

Erna, 12.12.2008 kl. 22:18

6 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Ég ætla ekki að tjá mig um skattagjörninga ríkisstjórnarinna, er hrædd um að ég missi mig í reiðilestur. Hins vegar vissi ég og ábyggilega þú líka Dúna mín, að þetta yrði leiðin, þetta hefur nefnilega alltaf verið leiðin hér á landi að minnsta kosti. Alltaf þeir smæstu sem fá að kenna á öllu klúðri.

Sigríður Jóhannsdóttir, 14.12.2008 kl. 16:47

7 Smámynd: Sigríður Jóhannsdóttir

Hafðu það gott góðan mín!

Sigríður Jóhannsdóttir, 14.12.2008 kl. 16:48

8 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Þessi kveðskapur er snilld, ég tek mér það leyfi að stela þessu af síðunni þinni, vonandi er mér fyrirgefið.

Gunnar Skúli Ármannsson, 22.12.2008 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Jónína Eiríksdóttir
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
54 ára kerling bý á Kópaskeri, bjó áður í Ystuvík og á Akureyri, uppalin í Nýlendu á Stafnesi og  margra barna mamma fósturmamma og amma sem hefur ýmsar skoðanir á lífinu.  
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband