Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Ja hérna

Guðni bara hættur og farinn. Ég óska honum alls hins besta. Sennilega mættu margir taka hann til fyrirmyndar og láta sig hverfa. Ekki veit ég hvort ég get óskað Völlu til hamingju með að vera komin í formannsstólinn, held að það verði henni ekki til góðs.
Sennilega væri best að leggja niður framsókn og stofna frekar nýjan flokk, ef einhverjir hafa áhuga á að fara í framboð og vera endalaust á milli tannana á fólki.


mbl.is Afsögn Guðna kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Duglegar konur.

Þetta er mjög góð byrjun á jólaundirbúningi.
Og eflaust gaman fyrir þær að koma saman við svona iðju.
mbl.is Steiktu 2500 laufabrauðskökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er og get ekki annað.

Já auðvitað er ég á lífi(sá lifir lengst sem líðnum er leiðast) hef bara verið í óvenju mikilli vinnu og kanski leti líka. Á fimmtudagskvöldið var haustfagnaður í Lundi hjá 8-10 bekk, þau elduðu dýrindismat með aðstoð og svo voru skemmtiatriði, þemað var draugagangur. Þetta var flott hjá þeim.

 13 nóv 2008 012

Dísa, Anna Karen, Magga og Jónína (fósturdóttirin)

Hafið það gott.


Eru flestar fréttir leiðinlegar fréttir?

Það sem ég sé og heyri í fréttum þessa dagana er mest allt neikvætt, ef ekki peningalega þá mannskemandi á eitthvern annan hátt. Það liggur við að ég sé að hugsa um að fara í fréttabann í nokkra daga og opna  hvorki sjónvarp, blöð né tölvuna.  Hee jæja kanski er ég nú ekki svona svakalega niðurdreginn þótt ég sé hálf þreytt eftir daginn, kanski af því að ég var bara andvaka í nótt og sofnaði ekki fyrr en um 3 leitið, enda grútsyfjuð um 7 þegar ég fór á fætur.

En það eru en afmæli í minni stórfjölskyldu, Stip hollendski tengdasonurinn er fertugur í dag og hann á engar eignir í bannkanum í Hollandi, bara íbúða skuldir á Íslandi og fjögur börn með henni Siggu Möggu minni. Svo er minsta ömmubarnið eins árs í dag hún Guðrún Lilja Ólafs og Jónu dóttir. Sem sagt frænka hennar Jakobínu Ólafsd.

Tvíburaskýrn

Stip og Sigga Magga að láta skýra tvíbba fyrir tveim og hálfu ári. Systurnar Jónasína Fanney og Jóna Bergþóra halda á kertunum.  Svo eru börnin fjögur og Álfheiður Una fékk að vera með.

Systur í Skarðshlíðinni

þETTA ER SVO Guðrún Lilja afmælisbarn og stóra systir. Smile

Hafið það gott og passið ykkur á myrkrinu.


Jólahvað?

Það fer víst að styttast til jóla og sumir verða jólastressóðir.

Gott ráð er að gera bara eitthvað skemmtilegt á aðvenntu eins og aðföndra og þeir duglegu búa til jólagjafirnar. 

Þennan jólatrésdúk fékk ég einu sinni frá mömmu.

9 nóv 2008 006 Það vanntar í mig þessa hæfileika.

 

ac0277

Hafið það gott englarnir mínir.

 

 


Útflutningur

Þá eru Íslendingar búnir að finna nýja leið til gjaldeyrisöflunnar. Wink  Kanski hefðu fleirri átt að sleppa því að kaupa nýja bíla og keyra á þeim gömlu. Whistling
mbl.is Druslurnar sendar úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að skrökva?

Já auðvitað eiga sem flestir að ljúga eða sleppa því að segja sannleikann. Að vísu á ég erfitt með það, lýg allavega ekki viljandi en það hefur komið fyrir að ég segi ekkert.

Ég vona að ráðamenn byrji nú á því að segja okkur sannleikann því sannleikurinn er sagna bestur. Eins og ég segi við börnin ef þú skrökvar kemst það oftast upp.

 


mbl.is Rekin fyrir að segja ekki ósatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góða helgi

Ég hef verið annað að sýsla en að blogga þessa síðustu daga, ég þurfti að gera verkefni fyrir skólann. Í dag var ég að mála eftir tónlist, ýmislegt sem maður er látin prufa.

Allaflestar fréttir eru um peninga og stjórnmál sem ið vitum öll að er hvorugt í lagi þannig að ég sendi ykkur bara þessa heilræða vísu.  

Hann var nú prestur í Hvalneskirkju. Grin

Hallgrímur Pétursson.

Auðtrúa þú aldrei sért,
ekki að tala um hug þinn þvert;
það má kalla hyggins hátt,
að heyra margt, en skrafa fátt.
Tak þitt æ í tíma ráð,
tókst þó ei sé lundin bráð;
vin þinn skaltu velja þér,
sem vitur og þar með tryggur er.

Knús til ykkar og hafið það gott um helgina.


Afgreiðslufólk ekki vant að sjá peninga.

Ótrúlegt að þetta geti verið hægt. Ætli það fari ekki að styttast í að 10.000 króna seðill komi á markaðinn og 500 og 1.000 kallinn verði mynt?
mbl.is Notaði seðil með mynd af Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðrún Jónína Eiríksdóttir
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
54 ára kerling bý á Kópaskeri, bjó áður í Ystuvík og á Akureyri, uppalin í Nýlendu á Stafnesi og  margra barna mamma fósturmamma og amma sem hefur ýmsar skoðanir á lífinu.  
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband