Leita í fréttum mbl.is

Eitthvað verður að gera.

Já nú er krónan í frjálsu falli, þessa síðustu daga hefur fallhlífin ekki opnast. Stjórnvöld verða að gera einhverjar ráðstafanir. Vont þykir mér að heyra sama sem ekkert í Samfylkingunni eftir að hún komst í réttu stólanna. Það hefði allavega heyrst meira frá þeim hefðu þeir verið í stjórnarandstöðu. Sennilega er auðveldara um að tala en í að komast. En þegar evran er kominn í 141,11 og pundið í 177,91 þá blöskrar mér óskaplega.

Hvernig var það í þessu mikla góðæri sem mér er sagt að sé búið að vera, settu ráðamenn ekkert til hliðar fyrir mögru árin? Fór það allt í þotur og bruðl? spyr sá sem ekki veit. En ég þakka sko fyrir að vera ekki með erlend lán. Nóg er að borga samt. 

Ráðamenn brettið upp ermarnar og gerið eitthvað, fáið hjálp til þess frá öðrum ef þarf, ég er hrædd um að sjálfsvíg aukist, þegar fólk sér ekki neina leið til að komast af.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Tek undir þetta.  Þetta ástand er að versna og versna og stjórnin virðist ekkert  gera.  Ég bara skil þetta als ekki.  Það er komin all há verðbólga, við búum við hæstu vexti í heimi.  Það rís enginn rekstur undir þessu og þá blasir við atvinnuleysi og gjaldþrotahrina.  

Það sem væri hægt að gera er að leyfa íbúðalánasjóði að skuldbreyta skuldum  einstaklinga.

Lækka vexti íbúðalánasjóðs tímabundið. 

Fella niður stimpilgjaldið til að létta á fasteignamarkaðnum.

Lögleiða skyldusparnað. 

Jón Halldór Guðmundsson, 28.9.2008 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðrún Jónína Eiríksdóttir
Guðrún Jónína Eiríksdóttir
54 ára kerling bý á Kópaskeri, bjó áður í Ystuvík og á Akureyri, uppalin í Nýlendu á Stafnesi og  margra barna mamma fósturmamma og amma sem hefur ýmsar skoðanir á lífinu.  
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband